Verið velkomin
Á-listinn
rangárþingi ytra
Velkomin á vef Á-listans í Rangárþingi ytra
Hér geturðu kynnt þér hver skipa Á-listann í sveitarstjórnarkosningunum þann 16. maí og lesið nánar um það fólk sem býður krafta sína fram til starfa fyrir sveitarfélagið. Hér getur þú kynnt þér málefnin: Stefnumál 2026
Á-listinn byggir á skýrum grunngildum um ábyrgð, gagnsæi, fagmennsku og virðingu fyrir íbúum og samfélaginu öllu. Við leggjum áherslu á opna upplýsingagjöf, vandaða stjórnsýslu og málefnalega umræðu um framtíð Rangárþings ytra.
Á þessari síðu geturðu einnig skoðað greinar og pistla þar sem fjallað er um málefni sveitarfélagsins, áherslur Á-listans og þau verkefni sem fram undan eru. Á næstu dögum verður jafnframt birt málefnaskrá Á-listans fyrir komandi kosningar.
Við hvetjum þig einnig til að fylgjast með Facebook-síðu Á-listans, sem er mjög virk í upplýsingagjöf og miðlar reglulega fréttum, umræðu og efni tengdu kosningabaráttunni.

