
Stefnumál 2026-2030
LISTI ÁHUGAFÓLKS UM SVEITARSTJÓRNARMÁL
VIÐ ÆTLUM AÐ
• Taka upp gjaldfrjálsar máltíðir í leikskólum
• Ráðstafa fjármagni til samfélagslegra verkefna árlega sem íbúar kjósa um
• Hækka aldursviðmið frístundastyrks í 18 ár
• Byggja áfram upp á Laugalandi og Hellu
• Opna frístundahús fyrir allan aldur
• Byggja upp leikvelli og útivistarsvæði
• Endurskoða gjaldskrár
• Koma lausum lóðum í notkun
• Upplýsa og þjónusta alla íbúa vel
• Auka umferðaröryggi
• Þrýsta áfram á lágvöruverðsverslun
• Byggja upp frjálsíþróttavöll 2027
Höldum áfram að byggja upp – X við Á
STJÓRNSÝSLA OG FJÁRMÁL
Traust, gagnsæi og skilvirk þjónusta
Við leggjum áherslu á:
• Að viðhalda skýru upplýsingaflæði til íbúa
• Trausta og ábyrga fjármálastjórn og hóflega álagningu gjalda
• Opið og gagnsætt bókhald
• Gott aðgengi að fundargögnum og upplýsingum
• Skýra og aðgengilega heimasíðu sveitarfélagsins
• Markvissa og gagnsæja afgreiðslu erinda
• Gott aðgengi að kjörnum fulltrúum og sveitarstjóra
• Fasta viðtalstíma kjörinna fulltrúa
• Virkara hlutverk Öldungaráðs, Ungmennaráðs og Fjölmenningarráðs
• Virkt íbúalýðræði með reglulegum skoðanakönnunum og íbúafundum
• Að gefa íbúum tækifæri til þess að hafa bein áhrif á og velja verkefni með lýðræðislegri kosningu sem sveitarstjórn ráðstafar fjármunum til og koma til framkvæmda
ATVINNA OG MENNING
Fleiri tækifæri og lifandi samfélag
Við leggjum áherslu á:
• Aðgerðir til að laða að fjölbreytt störf og nýja starfsemi á svæðið
• Þróun aðstöðu fyrir fjarvinnu og ný störf
• Að skapa betri skilyrði fyrir atvinnuuppbyggingu og nýsköpun
• Að kynna sveitarfélagið sem aðlaðandi búsetukost
• Gerð atvinnustefnu Rangárþings ytra 2026
• Gott samstarf við ferðaþjónustuaðila um að gera sveitarfélagið að eftirsóttum áfangastað
• Viðhalda öflugu menningar- og félagsstarfi í sveitarfélaginu
• Stuðning við viðburði og samfélagsleg verkefni sem styrkja samkennd íbúa
• Að halda veglega upp á 100 ára afmæli Hellu 2027
• Að upphefja elsta sveitaþorp á Íslandi – Þykkvabæ
• Að auka sýnileika söguminja og menningararfs, t.d. Odda á Rangárvöllum
• Að styðja við skapandi greinar, listastarfsemi og frumkvöðlastarf í sveitarfélaginu
FRÆÐSLA OG FARSÆLD BARNA
Sterkt skólastarf og jöfn tækifæri
Við leggjum áherslu á:
• Að teknar verði upp gjaldfrjálsar máltíðir í leikskólum
• Framtíðaraðstöðu fyrir skóladagheimili og dagskóla yngsta stigs
• Að hver nemandi fái þjónustu og kennslu miðað við sínar þarfir, m.a. sálfræðiþjónustu og íslenskukennslu fyrir nemendur með annað móðurmál
• Öfluga sérkennslu og stuðning í skólum
• Eflingu nýsköpunar, list- og verkmenntunar
• Heilsusamlegt og næringarríkt fæði í skólum
• Forvarnir og heilsuefling séu hluti af öllu skipulögðu starfi fyrir börn og ungmenni
• Fjölbreyttari og áhugaverðari verkefni fyrir vinnuskólann
• Að efla og þróa sumarnámskeið og frístund barna
• Bætta fjarnámsaðstöðu á framhalds- og háskólastigi – til að styðja við íbúa sem vilja sækja sér menntun án þess að þurfa að flytjast búferlum
• Innleiðingu laga um farsæld barna
ÍÞRÓTTA- OG ÆSKULÝÐSMÁL
Heilsueflandi samfélag fyrir alla
Við leggjum áherslu á:
• Uppbyggingu leikvalla, leiksvæða og aðstöðu til daglegrar hreyfingar fyrir alla aldurshópa
• Að hækka aldursviðmið Frístundastyrks frá 6 – 16 ára í 6 – 18 ára aldur
• Uppbyggingu og viðhald mannvirkja, þar á meðal sundlauga á Laugalandi og Hellu og íþróttahúss í Þykkvabæ
• Tímasetta verkáætlun um uppbyggingu íþrótta- og útivistarsvæðis á Hellu m.a.
o Lokafrágang og umgjörð knattspyrnuvallar – 2026
o Að byggja frjálsíþróttavöll sem verður tekinn í notkun 2027
o Undirbúningur verði hafinn að fjölnota íþróttahöll
• Frístundasetur
o Aðstöðu fyrir skipulagt félagsstarf barna og fullorðinna og starfsemi frjálsra félagasamtaka
o Aðstöðu þar sem börn geta dvalið milli skóla og skipulagðs íþrótta- og tómstundastarfs, óháð búsetu
o Að félagsmiðstöðin Hellirinn fái aðstöðu í nýju frístundasetri
o Að efla félagsmiðstöðina með auknum opnunartíma, skipulagðri dagskrá og þátttöku ungmenna í skipulagi
• Að þróa áfram hugmyndir um frístundaakstur í sveitarfélaginu
ÍBÚAGÁTT
Á-listinn hefur kallað eftir hugmyndum íbúa um framtíðina í gegnum íbúagátt sína. Tillögurnar eru allar áhugaverðar og þess virði að skoða þær betur. Langflestar fjalla um börn, skóla, íþróttir og frístundir en einnig allnokkrar um umferðaröryggi, menningu og félagsstarf. Allar tillögurnar verða hafðar opnar og munu móta starf Á-listans. Íbúagáttin verður áfram opin til að taka á móti hugmyndum.
Dæmi um tillögur sem bárust:
• Efla stoðþjónustu í skólum
• Bætt sumarúrræði fyrir börn
• Öruggari göngu- og hjólaleiðir
• Fjölnota menningarhús
• Bætt flokkun og jarðgerð
• Skjól við nýjan gervigrasvöll
• Hiti undir gervigrasvöll
• Auka virkni í heilsueflandi samfélagi
• Þrýsta á lágvöruverðsverslun
• Fleiri ruslatunnur á opnum svæðum
• Fjölga grænum svæðum til útivistar
• Húsnæði skóladagheimilis
VELFERÐ OG LÍFSGÆÐI
Gott samfélag fyrir alla íbúa
Við leggjum áherslu á:
• Að málefni barna og fjölskyldna séu ávallt í forgangi við ráðstöfun fjármuna
• Að vinna áfram af krafti að því að koma á fót lágvöruverðsverslun í sveitarfélaginu
• Að íbúar geti búið heima sem lengst með viðeigandi þjónustu
• Að efla þjónustu sveitarfélagsins við eldri borgara
• Bætt aðgengi við íþróttamannvirki og stofnanir sveitarfélagsins
• Að taka vel á móti nýjum íbúum og styðja við að þeir verði virkir þátttakendur í samfélaginu
• Gott starfsumhverfi og góðar starfsaðstæður fyrir starfsfólk
• Uppbyggingu lífsgæðakjarna fyrir 60+ þar sem heimili og þjónusta tengjast
• Uppbyggingu og eflingu Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Lundar
• Að standa vörð um heilbrigðisþjónustu í heimabyggð, þ.m.t. geðheilbrigðisþjónustu og heimahjúkrun utan dagvinnutíma
SKIPULAG OG UPPBYGGING
Skipulögð þróun og skýr framtíðarsýn
Við leggjum áherslu á:
• Nægt og fjölbreytt framboð lóða fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði
• Fjölbreytta búsetukosti og áframhaldandi stuðning við fyrstu kaupendur
• Endurskoðun gjaldskrár gatnagerðargjalda
• Skýra og gegnsæja verkferla, m.a. í úthlutun lóða og gjalda
• Skýrar reglur og bætt upplýsingaflæði um lausar lóðir og lóðaúthlutanir
• Skipulag og undirbúning uppbyggingar á lykilsvæðum í sveitarfélaginu
• Uppbyggingu og viðhald eigna á Laugalandi og Hellu
• Að ljúka við vinnu miðbæjarskipulags
• Áframhaldandi þróun hverfisskipulags gamla þorpsins á Hellu
• Uppbyggingu reiðleiða og aðstöðu tengda hestamennsku
SAMGÖNGUMÁL
Öruggari og betri samgöngur – sterkari innviði
Við leggjum áherslu á:
• Uppbyggingu gangbrauta og annarra umferðaröryggismála
• Aðgengi fyrir öll, m.a. við uppbyggingu gangstétta og göngustíga
• Þrýsta á uppbyggingu og viðhald héraðs- og tengivega
• Uppbyggingu og endurnýjun gatna í þéttbýli
• Samþættingu snjómoksturs milli sveitarfélags og Vegagerðarinnar
• Áframhaldandi lagningu á hjóla- og göngustíg milli Hellu og Hvolsvallar
• Uppbyggingu reiðvega og varðveislu gamalla þjóðleiða
• Að vinna markvisst að bættu umferðaröryggi við skóla, íþróttasvæði og fjölfarna staði
• Að efla merkingar, lýsingu og aðgengi við göngu-, hjóla- og reiðleiðir um allt sveitarfélagið
UMHVERFI OG NÁTTÚRA
Nýtum og verndum náttúruna skynsamlega
Við leggjum áherslu á:
• Skipulags- og uppbyggingarstarf með Skógræktarfélagi Rangæinga, m.a. í Aldamótaskógi
• Að setja mælanleg markmið um minnkun úrgangs og auka endurvinnsluhlutfall sveitarfélagsins
• Græn svæði í þéttbýli
• Að móta heildstæða auðlindastefnu sem verður bindandi hluti af aðalskipulagi sveitarfélagsins
• Að stýra álagi ferðamanna með markvissri uppbyggingu stíga, merkinga og aðgengis – og vernda þannig vinsæl svæði fyrir átroðningi
• Að skilgreina og vernda sérstaklega viðkvæm náttúrusvæði innan sveitarfélagsins í aðalskipulagi
• Að gera aðkomu að þéttbýli snyrtilegri með markvissum umbótum á grænum svæðum
• Að fjölga bekkjum og ruslatunnum við göngu- og útivistarsvæði
• Að einfalda og bæta flokkunarkerfi með betra aðgengi og skýrari upplýsingum til íbúa og fyrirtækja
• Að efla fræðslu og hvetja til þátttöku íbúa í sameiginlegum átaksverkefnum og hreinsunardögum
Hvernig gengur okkur að vinna að okkar áherslum?
