Áramótapistill oddvita 2025

Við áramót er við hæfi að líta til baka og velta fyrir sér verkefnum líðandi árs og því helsta sem fram undan er á næsta ári. Árið sem er að líða hefur annasamt hjá sveitarstjórn og samstarfið gengið vel – enda vilja allir kjörnir fulltrúar samfélaginu það besta og vilja hámarka þá þjónustu sem sveitarfélagið getur veitt, með skynsamlegum og ábyrgum hætti. 

Rangárþing ytra stendur vel en það er ekki sjálfgefið á tímum þar sem óvissa, verðbólga og hækkaður framkvæmdakostnaður á undanförnum árum hafa sett fjölmörg sveitarfélög í þrönga stöðu. Íbúafjölgun hjá okkur hefur verið stöðug á undanförnum árum en þó ekki meiri en svo að sveitarfélagið hefur ráðið vel við að þjónusta nýja íbúa. Íbúafjöldinn er núna rétt um 2.000 íbúar sem skiptist nánast jafnt í þéttbýli og dreifbýli.

Ábyrgur rekstur

Við höfum verið svo lánssöm að okkur hefur tekist að vinna sameiginlega að úrlausn ólíkra verkefna í sveitarfélaginu okkar. Við höfum stýrt málum af festu, rekið sveitarfélagið af ábyrgð og um leið forgangsraðað af skynsemi og byggt upp með framtíðina að leiðarljósi. Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2026 er gert ráð fyrir 346 milljóna króna afgangi af rekstri sem yrði góð niðurstaða. Á öllu kjörtímabilinu hefur reksturinn gengið betur en áætlanir sögðu til um, með meiri afgangi en gert var ráð fyrir – þetta sýnir að við höfum rekið sveitarfélagið af festu og ábyrgð, áætlað af varfærni og byggt upp svigrúm til að halda áfram að fjárfesta í framtíðinni.

Á kjörtímabilinu höfum við lagt sérstaka áherslu á að styrkja sveitarfélagið sem góðan búsetukost með fjárfestingum í lykilinnviðum. Fjárfestingar í skólamannvirkjum og aðstöðu fyrir börn og ungmenni eru ekki bara framkvæmdir, heldur eru þær miklu frekar yfirlýsing um í hvernig samfélagi við viljum búa – með því viljum við setja uppeldi, menntun og almenna velferð í forgang. Það sama á við um uppbyggingu íþróttamannvirkja – með því er verið að styðja við heilsueflingu, forvarnir og félagslíf og allt það sem gerir samfélagið okkar öflugt.

Helstu framkvæmdir á næsta ári

Á næsta ári mun sveitarfélagið framkvæma fyrir rúman 1 milljarð kr. og verður það stærsta framkvæmdaár frá stofnun sveitarfélagsins. Langstærsta verkefnið er áframhaldandi uppbygging grunnskólans á Hellu og nýbygging leikskóla. Okkur hefur gengið mjög vel að halda kostnaði vegna stækkunar grunnskólans á Hellu innan kostnaðaráætlunar. Í dag er kostnaður vegna þessa verkefnis kominn í 2,3 milljarða króna sem gerir um 600 þúsund króna á hvern fermetra, við getum öll verið mjög stolt af þessum árangri. Starfsemi skólans mun flytja í nýtt húsnæði seinna í vetur og samhliða því munum við eignast nýjan menningarsal þar sem mötuneytissalur skólans verður. Þessi nýi glæsilegi salur mun í framtíðinni nýtast m.a. fyrir tónleika, leiksýningar og stærri fundi. 

Á Laugalandi verður ráðist í viðhalds- og fjárfestingarverkefni sem eru löngu tímabær, enda hefur nemendum í bæði grunn- og leikskóla fjölgað og þarfagreining sýnt fram á brýna þörf fyrir endurbætur. Megináherslan er á að stækka leikskólahúsnæðið og laga nýtingu rýma þannig að hægt verði að bæta við nýrri leikskóladeild og styrkja aðstöðu fyrir skólastarfið. Samhliða verður unnið að því að bæta hljóðvist í húsnæðinu og tryggja betri og nútímalegri aðstöðu, þar á meðal með endurnýjun og uppfærslu búnaðar í íþróttahúsinu. Í áætlunum er miðað við að heildarfjárfestingin geti numið um 150 milljónum króna, og jafnframt hefur verið ákveðið að fara í nánari kostnaðargreiningu á fyrirhuguðum framkvæmdum. Með þessu er markmiðið að skapa betri daglegar aðstæður fyrir börn og starfsfólk og búa Laugalandsskóla betur undir áframhaldandi vöxt á næstu árum. 

Unnið er að undirbúningi framkvæmdanna við Hjúkrunar- og dvalarheimilið Lund á Hellu, þar sem þarfagreining og frumdrög að hönnun liggja fyrir og endurspegla markmið okkar um betri og heilsteyptari þjónustu fyrir íbúa. Þetta felur í sér að skapa betri rými og aðstöðu fyrir dagdvöl, iðju- og endurhæfingarþjónustu sem og bætta vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk, svo þjónustan verði skilvirkari, notendavænni og betur sniðin að þörfum aldraðra. Unnið er að frekari útfærslu, kostnaðarmati og fjármögnun næstu áfanga, með það að leiðarljósi að tryggja að framkvæmdir geti hafist þegar fullur stuðningur og ráðstöfun fjármuna liggur fyrir. 

Nú er að fara í gang skipulagsvinna fyrir landspildu sem sveitarfélagið keypti úr landi Helluvaðs. Þar er stefnt að uppbyggingu framtíðar íþrótta- og útivistarsvæðis, auk nýrrar íbúðabyggðar, og meðal verkefna er gerð löglegs frjálsíþróttavallar. Í vor verður jafnframt gengið frá bráðabirgðaaðstöðu við nýja gervigrasvöllinn þannig að hann nýtist sem best í sumar. Á næstu árum er síðan gert ráð fyrir að byggja upp varanlega og fjölbreytta aðstöðu til íþróttaiðkunar á svæðinu.

Fleiri í framkvæmdahug

En það eru fleiri en sveitarfélagið sem áforma framkvæmdir á næsta ári. Reykjagarður hefst handa á næstunni við stækkun á sinni starfsemi. Byggt verður nýtt 4 þúsund fermetra húsnæði og sett inn ný vinnslulína, auk þess sem framleiðslueldhús fyrir skyndirétti, sem hefur verið starfrækt í Garðabæ, flyst í nýja húsið. Með því verða til 25 ný störf sem er ánægjulegt fyrir samfélagið hér en það má líkja þessu við að um 150 ný störf yrðu til í sveitarfélaginu Árborg á einu bretti. 

Landsvirkjun er með mikil áform sem snerta samfélagið okkar bæði beint og óbeint. Nú eftir áramótin verður auglýst útboð vegna byggingar þjónustuhúss fyrirtækisins sem rísa mun við Faxaflatir á Hellu. Um leið eru stórar framkvæmdir ýmist hafnar eða í undirbúningi við Vaðölduver, sem hefur verið kynnt sem fyrsta vindorkuver landsins. Í tengslum við þau áform eru í gangi styrkingar og klæðning á Landvegi eða alls tæplega 14 km vegbútur sem átti eftir að leggja á bundið slitlag. Nú liggur fyrir hjá sveitarfélaginu umsókn um framkvæmdaleyfi vegna Hvammsvirkjunar og verður sú umsókn tekin til umfjöllunar nú strax eftir áramót, auk þess sem unnið er að aflaukningu við Sigölduvirkjun. Að undanförnu hefur Vegagerðin einnig unnið að vegabótum í sveitarfélaginu eins og t.d. breikkun og klæðningu á Hagabraut eða alls 7,5 km kafla.

Samhliða öllu þessu eru mikil áform í ferðaþjónustu og nýir veitingastaðir verið opnaðir. Fyrir liggur viljayfirlýsing um rekstur lágvöruverðsverslunar á Hellu sem íbúar hafa kallað sterkt eftir árum saman. Traustir byggingaraðilar hafa óskað eftir byggingalóðum fyrir fjölbýlishús þar sem byggðar yrðu minni íbúðir sem uppfylla skilyrði um hlutdeildarlán. Meðferðarheimilið Lækjarbakki mun hefja starfsemi í Gunnarsholti á nýju ári en meðferðin þar er ætluð fyrir unga drengi sem glíma við alvarlegan vanda eins og vímuefnaneyslu, ofbeldi, afbrot eða skóla og námserfiðleika. 

Fleiri stór verkefni eru í burðarliðnum sem ekki er hægt að fara yfir í stuttum pistli. Afstaða okkar, sem stýrum sveitarfélaginu núna, er skýr: Við eigum að vinna faglega með þessu verkefnum, tryggja gott upplýsingaflæði, standa vörð um öryggi og hagsmuni íbúanna og jafnframt sækja þau fjölmörgu tækifæri sem fylgja.

Áskoranir næsta árs

Við stöndum frammi fyrir stórum verkefnum sem munu styrkja byggðina okkar til lengri tíma. Atvinnulífið mun styrkjast, verða fjölbreyttara, framtíðartekjur sveitarfélagsins munu aukast og því er nauðsynlegt að standa rétt að málum. Okkar takmark á nýju ári er að halda áfram án þess að missa athyglina af þeim málum sem skipta okkur máli. Árangur næst þegar við klárum þau verkefni sem þegar eru hafin og gera það vel, forgangsraða í framkvæmdum þannig að þær þjóni sem flestum. Ég vil líka leggja áherslu á að árangur næst aldrei í einrúmi, í sveitarstjórn sitja fulltrúar ólíkra lista en þrátt fyrir mismunandi áherslur er okkar sameiginlega verkefni að vinna að heildarhagsmunum Rangárþings ytra. Það er einmitt þannig sem við viljum byggja samfélagið áfram með sanngirni, heiðarleika og virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum.

Það skiptir einnig miklu máli að gjaldtaka og skattar á íbúa og fyrirtæki séu hófleg og við sýnum festu í fjármálum svo við getum bæði sinnt daglegri þjónustu og farið í nauðsynlegar framkvæmdir. Ef við vinnum af hófsemi, ábyrgð og sanngirni mun það skila okkur til baka trausti og stöðugleika. Mig langar að óska eftir því við alla íbúa að halda áfram að vera virkir liðsmenn með því að mæta í samtal, senda inn ábendingar, taka þátt í félagslífi og styðja við börnin okkar og ungmenni. Það er ekki veikleiki að vera ósammála um leiðir en við verðum að vera sammála um það markmið að Rangárþing ytra sé gott heimili fyrir núverandi íbúa og alla þá sem vilja setjast hér að. 

Að lokum vil ég þakka starfsfólki sveitarfélagsins, félagasamtökum og íbúum öllum sem leggja sitt af mörkum oft í kyrrþey fyrir samfélagið okkar. Það er þetta samspil sem gerir okkur sterk, fyrir hönd Á-listans óska ég ykkur öllum gleðilegra áramóta, góðrar heilsu og farsældar á nýju ári.

Megi 2026 verða ár samvinnu, framkvæmdagleði og áframhaldandi trausts.

Eggert Valur Guðmundsson,
oddviti sveitarstjórnar Rangárþings ytra og Á-listans.