Til að kynnast Guðbjörgu Snorradóttur, nýjum frambjóðanda Á-listans í 6. sæti, var tekið við hana stutt viðtal. Þar segir hún frá fjölskyldunni, flutningnum á Hellu, móttökunum í samfélaginu og því hvers vegna hún ákvað að bjóða sig fram.
Hver ert þú?
Guðbjörg Snorradóttir heiti ég og er á fertugasta ári. Ég flutti á Hellu í október 2024 ásamt Ingvari manni mínum, tveimur dætrum og púðluhundinum okkar. Ég er sjúkraliði, þroskaþjálfi og viðurkenndur bókari að mennt og starfa við það síðastnefnda hjá Meniga. Ég hef sinnt ýmsum félagsstörfum í gegnum tíðina, er í stjórn Foreldrafélags Grunnskólans á Hellu og gegni núna því veigamikla hlutverki að vera formaður þorrablótsnefndar 2027.
Af hverju fluttu þið fjölskyldan í Rangárþing ytra?
Maðurinn minn, Ingvar Magnússon, er héðan en ég á líka sjálf sterkar rætur hér þó að ég sé alin upp í Mosfellsbæ. Amma Dísa og afi Magnús fluttu á Geldingalæk þegar gaus í Vestmannaeyjum og svo seinna í Norðurbæ í Gunnarsholti. Hér á ég því fjölskyldu og bakland. Við fjölskyldan fluttum hingað frá Ítalíu, þar sem við höfðum átt yndislega og þroskandi dvöl, sem kenndi okkur hversu ómetanlegt það er að hafa bakland sitt og fjölskyldu nærri sér. Við höfðum líka saknað rólegheitanna og náttúruperlanna í sveitinni okkar.
Hvernig fannst þér tekið á móti þér í samfélaginu sem nýr íbúi?
Ótrúlega vel. Ég upplifði mig samt ekki sem “nýja” þar sem ég hef alltaf verið með annan fótinn hér og þekki ansi marga. En ég er í fyrsta skipti með börn í grunnskóla á Hellu og við höfum fengið frábærar móttökur. Dætur okkar voru fljótar að aðlagast og fundu strax sína vinahópa. Þær eru mjög virkar í tómstundum og félagslífi og ætla aldrei að flytja frá Hellu. Það eru að mínu mati bestu meðmælin.
Hvers vegna ákvaðstu að bjóða þig fram? Hvað telur þú að þú getir lagt af mörkum fyrir íbúa sveitarfélagsins?
Ég hef sterkar skoðanir á ákveðnum málefnum og vil láta til mín taka, frekar en að vera gagnrýnandi við eldhúsborðið. Því fannst mér það kjörið tækifæri að ganga í lið Á-listans þegar ég fékk boð um það. Það sem ég tel mig geta lagt að mörkum er að ég hlusta, ég leita svara og ég vil að sveitarfélagið sé staður þar sem öllum íbúum líður vel, ekki bara sumum.
Fyrir hvað myndir þú standa, jafnvel þó það væri óþægilegt?
Auðvelt svar, réttlæti. Ég hef mjög ríka réttlætiskennd og á erfitt með að horfa upp á að brotið sé gegn fólki.
Hver er fyrirmynd þín í lífinu og hvers vegna?
Amma Dísa, hún var ótrúleg kona sem gekk í gegnum margt. Alltaf bar hún þó höfuðið hátt og var þakklát fyrir hvern dag og sérstaklega var hún þakklát fyrir fjölskylduna sína.
Hvað gerir daginn betri samstundis – jafnvel slæman dag?
Gott spjall við góða vinkonu.



