„Við búum nú hamingjusöm í elsta sveitaþorpi á Íslandi.“

Anna Sóley Kjeld, skipar 9. sæti Á-listans. Til að kynnast henni betur var tekið við hana stutt viðtal, en þar segir hún frá flutningnum í Þykkvabæ, móttökunum í samfélaginu og því hvers vegna hún ákvað að bjóða sig fram.

Hver ert þú?

Ég heiti Anna Sóley, er 35 ára og bý í Þykkvabæ með manni mínum, Bjarna Kristjáni, við eigum saman þrjú börn.

Af hverju fluttuð þið fjölskyldan í Rangárþing ytra?

Við stukkum á tækifærið þegar við sáum hús sem okkur leist vel á í Þykkvabæ. Við áttum okkur draum um að flytjast í sveit og vorum ekki bundin annars staðar svo við ákváðum að taka skrefið og búum nú hamingjusöm í Rangárþingi ytra, í elsta sveitaþorpi á Íslandi.

Hvernig fannst þér tekið á móti þér í samfélaginu sem nýr íbúi?

Við fengum mjög góðar móttökur og fundum fyrir mikilli velvild og hlýju frá upphafi. Það kom okkur í raun mikið á óvart hversu margir sýndu okkur áhuga og við fundum fljótt að hérna ættum við heima.

Hvers vegna ákvaðstu að bjóða þig fram? Hvað telur þú að þú getir lagt af mörkum fyrir íbúa sveitarfélagsins?

Þegar ég fékk boð um að taka sæti á lista ákvað ég að láta slag standa af því að ég vil leggja mitt af mörkum til samfélagsins sem ég bý í. Ég er ákveðin og ófeimin, góð í að hlusta og lausnamiðuð.

Fyrir hvað myndir þú standa, jafnvel þó það væri óþægilegt?

Sannleika og réttlæti. Við eigum að þora að skipta okkur af ef við sjáum að eitthvað er ekki eins og það á að vera og þá sérstaklega þegar börn eiga í hlut, þau eiga alltaf að vera í forgangi.

Hver er fyrirmynd þín í lífinu og hvers vegna?

Móðuramma mín, amma Rannvá. Hún er sú manneskja sem hefur mótað mig hvað mest í lífinu og ég á henni margt að þakka. Við vorum miklar vinkonur.

Hvað gerir daginn betri samstundis – jafnvel slæman dag?

Köld sturta, ljúf tónlist sem ég get dillað mér við á meðan ég helli upp á kaffi og það allra besta að horfa í augun á börnunum mínum. Þau eru sannkallaðir gleðigjafar og gera allt samstundis betra.