Þessa ræðu flutti Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, sveitarstjóraefni Á-listans, á framboðsfundi þriðjudaginn 12. maí. Í ræðunni fór hann yfir sýn sína á hlutverk sveitarstjóra, mikilvægi trausts, góðs upplýsingaflæðis og þess að klára verkefni af ábyrgð.
“Ágætu fundarmenn.
Ég hef sagt það áður og ég segi það enn að lengi getur gott batnað. Við búum í góðu samfélagi, við höfum í langan tíma fengið gott fólk til forystu í sveitarstjórninni, við búum við góðan efnahag í sveitarfélaginu og þess vegna getum við horft björtum augum til þeirra verkefna sem bíða okkar.
Ég hef líka talað um mikilvægi þess að klára málin. Ég hef lengi gengist upp í því að hætta ekki við hálfkláruð verk. Þess vegna var það væntanlega engin tilviljun að ég leiddist inn á þá braut að ljúka meistaraprófi í verkefnastjórnun. Sú menntun hefur reynst mér afskaplega dýrmætt veganesti og mun eflaust verða það enn frekar ef mál skipast þannig að Á-listanum verði treyst til áframhaldandi forystu og mér til þess að setjast í stól sveitarstjórans og axla ábyrgð á því að koma hlutunum í verk.
Það er vandasamt starf sem ég mun – ef til þess kemur – nálgast af mikilli auðmýkt gagnvart öllum íbúum sveitarfélagsins. Sveitarstjórinn á ekki einungis að framkvæma það sem sveitarstjórn felur honum hverju sinni. Hann á að vera samnefnari og mannasættir, leggja við hlustir hvar sem hann kemur og tala máli íbúanna gagnvart þeim sem standa við stjórnvölinn.
Starf sveitarstjóra felur í sér ábyrgð, yfirsýn og daglega áskorun — en líka tækifæri til að leiða áfram þróun okkar frábæra samfélags. Ég brenn fyrir því að halda áfram að byggja upp sterkt samfélag fyrir allt það góða fólk sem hér býr. Fyrir fjölskyldur, börn, unglinga og ungt fólk, fyrir atvinnulífið, eldri borgara og komandi kynslóðir.
Ég tel það Á-listanum til tekna að tilkynna um sveitarstjóraefni sitt með góðum fyrirvara. Kjósendur þekkja ekki einungis framboðið af fyrri verkum þess heldur þekkja þeir líka hverjum ætlað er að halda utan um góðan rekstur í sveitarfélaginu og stýra framkvæmdum þess með hagkvæmni og skilvirkni að stöðugu leiðarljósi. Ég kann til slíkra verka og hlakka til að takast á við þau ef Á-listinn velst til forystu.
Stuðningur við Á-listann getur því grundvallast á öryggi í stað óvissu. Þið vitið hvað þið fáið, bæði í áherslum og vinnubrögðum þess fólks sem leikur þar lykilhlutverk og einnig er óvissan um sveitarstjóraefnið engin.
Eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir er að auðvelda bæði atvinnulífi og einstaklingum aðgengi að lóðum með endurskoðun á gjaldskrá byggingarleyfisgjalda. Regluverkið þarf að vera hvetjandi þó að við sýnum ábyrgð. Við viljum breyta því og auka þannig aðdráttarafl okkar bæði gagnvart fólki og fyrirtækjum.
Sterkt atvinnulíf er grunnurinn að góðri þjónustu, öflugu samfélagi og auknum lífsgæðum. Við viljum halda áfram að vinna markvisst að atvinnuuppbyggingu framtíðarinnar og skapa fleiri tækifæri fyrir fyrirtæki til þess að vaxa og þróast hér í sveitarfélaginu með öllum tiltækum ráðum. Við þurfum að hugsa til framtíðar og tryggja að sveitarfélagið sé tilbúið fyrir ný tækifæri og fjölbreytt störf.
Lágvöruverðsverslun á Hellu er baráttumál sem skiptir alla íbúa gríðarlegu máli og mun Á-listinn vinna að því.
Áherslumál okkar um ókeypis máltíðir í leik- og grunnskólum, frístundaakstur, frístundasetur og aukna frístundastyrki eru einnig mikilvæg fyrir okkar ungu fjölskyldur. Ekkert er mikilvægara en að vera fýsilegur búsetukostur fyrir ungt fólk. Þær áherslur þekki ég vel á eigin skinni, verandi búsettur í sveitarfélaginu og faðir þriggja barna á leik- og grunnskólaaldri.
Við höfum byggt markvisst upp á Hellu síðustu ár en uppbygging og viðhald eigna á Laugalandi og í Þykkvabæ er ekki síður mikilvægt verkefni. Við verðum að hafa skýrar áætlanir um viðhald eigna og framtíðaráform þar líkt og annars staðar. Á-listinn vinnur fyrir allt samfélagið.
Eilífðarverkefni allra sveitarstjórna er að bæta stjórnsýsluna, auka þjónustuna, efla atvinnulífið og laða til sín ungt fólk. Í þessum efnum er Rangárþing ytra engin undantekning. Engum dylst að við erum alls staðar á réttri leið. Það skiptir hins vegar líka miklu máli að vera á réttum hraða. Við megum hvergi dragast aftur úr. Samkeppnishæfni er lykilatriði.
Ágætu íbúar í Rangárþingi ytra.
Öll mál sem sveitarfélagið hrindir í framkvæmd byggjast á gagnkvæmu trausti. Forsenda þess er þekking og hún verður aldrei til nema með góðu flæði upplýsinga og vönduðum samskiptum við íbúana. Þeir eiga rétt á að vita hvað sveitarfélagið er að gera, hvernig verkefnum miðar áfram og af hvaða ástæðum þau breytast mögulega í framkvæmdaferlinu. Í mínum huga er þetta lykilatriði og ég mun leggja mikið á mig til þess að efla þennan þátt eins og kostur er.
Á-listinn kemur úr hreinum meirihluta og við höfum á síðustu árum sýnt að við getum komið málum af stað og fylgt þeim eftir. En betur má ef duga skal og í lok næsta kjörtímabils vil ég geta litið jafn hreykinn til baka eins og Á-listinn gerir í aðdraganda þessara kosninga.
Nýtum kosningaréttinn og setjum X við Á á kjördag.
Takk fyrir.”



