Hér skrifar Eggert Valur Guðmundsson, oddviti Á-listans, um kjörtímabilið sem nú er að líða, sterka stöðu sveitarfélagsins og þau tækifæri sem fram undan eru í Rangárþingi ytra.
Í pistlinum fer hann yfir mikilvægi trausts rekstrar, áframhaldandi uppbyggingar og skýrrar framtíðarsýnar fyrir sveitarfélagið. Á-listinn sækist eftir endurnýjuðu umboði íbúa til að halda áfram á þeirri braut að byggja upp gott samfélag fyrir alla íbúa Rangárþings ytra.
KÆRU ÍBÚAR RANGÁRÞINGS YTRA
Á kjörtímabilinu sem nú er að líða hefur Á-listinn lagt áherslu á ábyrga fjármálastjórn, uppbyggingu innviða, góða þjónustu og skýrt upplýsingaflæði til íbúa. Rekstur sveitarfélagsins hefur gengið vel og fólksfjölgun verið stöðug. Traustur og ábyrgur rekstur er forsenda þess að sveitarfélagið geti ráðist í nauðsynleg og aðkallandi verkefni og mætt framtíðinni af krafti.
Rekstrarafgangur á kjörtímabilinu hefur aldrei verið meiri og síðasta ár skilaði bestu niðurstöðu frá upphafi, um 448 milljónir króna afgangi af rekstrinum. Þess má geta að þessi góði árangur er ekki til kominn vegna eignasölu, heldur með styrkri fjármálastjórn og góðum rekstri. Á sama tíma er skuldastaða sveitarfélagsins betri í lok árs 2025 en hún var í lok árs 2021 áður en framkvæmdir hófust. Þetta sýnir að hægt er að halda rekstri sterkum samhliða því að ráðast í stór verkefni.
Unnið hefur verið að stórum og mikilvægum verkefnum, meðal annars í uppbyggingu skóla og íþróttamannvirkja auk fjölda annarra verkefna. Það er okkur sérstakt ánægjuefni og fréttnæmt á landsvísu að hafa haldið framkvæmdakostnaði við skólabygginguna á Hellu innan áætlunar.
Við höfum einnig lagt mikla áherslu á opna og gagnsæja stjórnsýslu þar sem upplýsingar eru aðgengilegar íbúum. Að okkar mati er það lykilforsenda heilbrigðs lýðræðis og vandaðra stjórnsýsluhátta. Þetta má einnig sjá í færslum Á-listans á samfélagsmiðlum, en þær skipta hundruðum á kjörtímabilinu.
Á næstu árum blasa við mikil tækifæri í Rangárþingi ytra. Sveitarfélagið er vel staðsett, hér býr öflugt fólk og áhugi á búsetu og frekari uppbyggingu fer vaxandi. Á næsta kjörtímabili skiptir miklu máli að nýta þessi tækifæri af skynsemi og framsýni. Við þurfum að tryggja örugga innviði, góða þjónustu við barnafjölskyldur, viðhalda öflugu skólastarfi og efla mannlíf um allt sveitarfélagið.
Á-listinn er þverpólitískt framboð. Innan okkar raða er fólk með ólíka reynslu og bakgrunn, sem er einmitt okkar aðalstyrkur. Við trúum því að sveitarstjórnarmál snúist fyrst og fremst um fólkið sem hér býr og að horfa beri til heildarhagsmuna sveitarfélagsins. Að þessu sinni bjóðum við fram ungan fjölskyldumann, Eirík Vilhelm Sigurðarson, sem sveitarstjóraefni framboðsins. Er þetta í fyrsta sinn sem við bjóðum fram sveitarstjóraefni til að fylgja áherslum okkar eftir. Eiríkur er þaulvanur félagsmálamaður og stjórnandi og þekkir vel til reksturs og stjórnsýslu sveitarfélaga.
Við höfum lagt áherslu á að vinna með íbúum, hlusta á ólík sjónarmið og taka ákvarðanir sem byggja upp samfélagið til framtíðar. Við göngum nú til kosninga með reynslu af ábyrgri stjórnun, skýra sýn á verkefnin fram undan og vilja til að halda áfram á þeirri braut sem við höfum markað. Við óskum eftir endurnýjuðu umboði frá íbúum til að nýta þau tækifæri sem fram undan eru, standa vörð um traustan rekstur og halda áfram að byggja upp gott samfélag í Rangárþingi ytra.
Setjum X við Á listann þann 16. maí.
Eggert Valur Guðmundsson, oddviti Á-listans í Rangárþingi ytra



