Nýr sveitarstjóri ráðinn í Rangárþingi ytra

Jón G. Valgeirsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Rangárþings ytra.

Jón er fæddur og uppalinn í Þverspyrnu í Hrunamannahreppi og er 54 ára. Hann er lögfræðingur að mennt og hefur verið starfandi sveitarstjóri á Suðurlandi síðustu 15 ár. Jón hefur því mikla reynslu af málefnum og stjórnsýslu sveitarfélaga, auk þess að hafa komið að og stýrt fjölmörgum verkefnum á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Jón er í sambúð með Guðbjörgu Viðarsdóttur kennara frá Svanavatni í Austur-Landeyjum og eiga þau saman tvö hálfuppkomin börn. Jón mun hefja störf þann 15. ágúst n.k. og stefnir fjölskyldan á að flytja í sveitarfélagið þegar hentugt húsnæði finnst. Ráðningarsamningur tekur formlega gildi þegar hann hefur verið staðfestur á fundi sveitarstjórnar.

“Ég er þakklátur og auðmjúkur fyrir að hafa verið treyst fyrir svo mikilvægu starfi fyrir samfélagið hérna. Það eru mörg spennandi verkefni framundan í sveitarfélaginu sem er í örum vexti og á sannarlega framtíðina fyrir sér. Ég hlakka til að takast á við verkefnin, sem framundan eru og setja mig inn í rekstur sveitarfélagsins sem og heyra í starfsfólki, íbúum, forsvarsmönnum atvinnulífsins og samfélaginu öllu um það helsta sem á þeim brennur”, sagði Jón .

“Við erum mjög ánægð að fá Jón til starfa fyrir sveitarfélagið okkar og væntum mikils af hans störfum á næstu árum. Mig langar fyrir hönd sveitarstjórnar og íbúa sveitarfélagsins að bjóða Jón og hans fjölskyldu hjartanlega velkominn hingað til okkar í Rangárþing ytra”, sagði Eggert Valur Guðmundsson oddviti sveitarstjórnar þegar gengið var frá ráðningu Jóns.