Skipulagsmál

Um virkjanamál og samfélagssáttmála

Á-listinn hefur lengi fjallað um málefni varðandi sanngjarna skiptingu arðs af orkuauðlindum eða frá stofnun listans árið 2010. Listinn hefur kynnt áherslumál sín í þessum efnum ítrekað, bæði í kosningabaráttu, á fundum með hagsmunaaðilum og við önnur tækifæri. Forsvarsmenn listans hafa talið að þessi mál séu sanngirnismál og að þau tengist byggðastefnu á landsvísu. Nú …

Um virkjanamál og samfélagssáttmála Read More »

Fundur á Hellu með forstjóra Landsvirkjunar

Ein af þeim hugmyndum sem fulltrúar Á-listans viðruðu á fundinum var hvort að ávinningur beggja aðila gæti verið fólginn í að fyrirtækið setji upp starfsstöðvar í sveitarfélaginu í tengslum við fyrirhugaðar framkvæmdir, en það er í samræmi við áherslur Á-listans sem komu fram í aðdraganda kosninga. Þessari hugmynd var vel tekið af fulltrúum Landsvirkjunar og verður spennandi að sjá hver niðurstaðan verður.

Skrifað undir viljayfirlýsingu um græna iðngarða í Rangárþingi ytra

Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri fyrir hönd Orkídeu, og Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri fyrir hönd sveitarfélagsins Rangárþings ytra, skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu á grænum iðngörðum á Strönd í Rangárþingi ytra. Telja má að í því felist mikil tækifæri til eflingar atvinnulífs í sveitarfélaginu gangi áformin eftir.

Hjólabrettasvæði í uppsetningu á Hellu

Eins og sumir hafa nú þegar tekið eftir er verið að setja upp hjólabrettasvæði á afmörkuðu svæði á bílastæði við sparkvöllinn sunnan við íþróttahúsið á Hellu. Takmarkið með þessari aðgerð er að koma búnaði sem hefur verið keyptur í hjólabrettagarðinn í virkni sem fyrst með hagkvæmum og skilvirkum hætti. Þessi staðsetning er hugsuð til bráðabirgða en …

Hjólabrettasvæði í uppsetningu á Hellu Read More »

Vinnuhópur um framtíðarskipulag íþróttavallasvæða í Rangárþingi ytra stofnaður

Hlutverk faghópsins er að vinna stefnu og koma með hugmyndir að því hvernig útiíþróttaaðstaða í Rangárþingi ytra á að byggjast upp, ásamt því að koma með grófa kostnaðaráætlun á hugmyndum. Faghópurinn skal skila af sér lokaskýrslu fyrir 1. nóvember 2022.

„Okkur fannst þetta bara frekja“

Land­eig­andi í Rangárþingi ytra seg­ir fjar­skipta­fyr­ir­tækið Ljós­leiðarann hafa sýnt af sér frekju í verk­efni sínu við ljós­leiðara­lögn milli Þjórsár og Hóls­ár og plæg­ingu ljós­leiðara­strengs um Þykkvabæ. Tel­ur hann að fyr­ir­tækið hafi átt að taka sam­tal við land­eig­end­ur við gerð samn­ings sem þeir fengu send­an vegna lagn­ing­ar ljós­leiðarans. „Fyr­ir það fyrsta er þetta svo ein­hliða. Þarna …

„Okkur fannst þetta bara frekja“ Read More »

Samningur um fullnaðarhönnun staðfestur

Á fundi sveitarstjórnar Rangárþings ytra þann 25. maí 2022 var lagður fram til staðfestingar hönnunarsamningur við VSÓ Ráðgjöf ehf um verkfræðihönnun við 2. áfanga nýrrar skólabyggingar Grunnskólans á Hellu. Samningurinn hljóðar upp á 70.037.742 kr. m. vsk og rúmast innan fjárhagsáætlunar. Áfangi 2 er nýbygging á tveimur hæðum, um 2465 m2. Breyting á eldri byggingum …

Samningur um fullnaðarhönnun staðfestur Read More »

Rangárþing ytra fær 55,2 milljónir í styrk

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða árið 2022 hefur nú úthlutað styrk til sveitarfélagsins Rangárþings ytra vegna hönnunar og framkvæmdar í samræmi við deiluskipulag við Fossabrekkur. Helstu markmið deiliskipulagsins eru að auka öryggi allra vegfarenda, bæta aðgengi að náttúru, vernda náttúru og ásýnd svæðisins, stuðla að upplifun sem byggist á náttúrufegurð og staðaranda, fræða vegfarendur um náttúru og sögu …

Rangárþing ytra fær 55,2 milljónir í styrk Read More »

Rangárþing ytra svarar ekki fyrirspurn frá forsætisráðuneytinu

Í frétt á mbl.is um nýja skýrslu Katrínar Jakobsdóttur um tekjur af nýtingu þjóðlendna kemur m.a. fram að hartnær 89% aðspurðra sveitarfélaga svöruðu fyrirspurn Forsætisráðuneytisins eða 34 sveitarfélög. Einungis fjögur sveitarfélög svöruðu ekki fyrirspurninni og var Rangárþing ytra eitt þeirra. Óskað var eftir þessum upplýsingum í byrjun árs 2022. Fréttin er hér fyrir neðan: Tekj­ur …

Rangárþing ytra svarar ekki fyrirspurn frá forsætisráðuneytinu Read More »

Skólasvæðið á hellu – Tímalína og helstu upplýsingar

11. apríl 2018 Fulltrúar Á-lista bóka í sveitarstjórn vegna máls nr. 1803008 “Þrúðvangur 18 – Möguleg kaup” (Fannbergshúsið) : “Fulltrúar Á-lista eru sannarlega fylgjandi því að tryggt sé leikskólapláss fyrir öll börn í sveitarfélaginu 12 mánaða og eldri sem þess óska, en telja að greina þurfi fyrirliggjandi þörf og framboð á leikskólarými í sveitarfélaginu áður …

Skólasvæðið á hellu – Tímalína og helstu upplýsingar Read More »

Tillaga – Deiliskipulag á gaddstöðum

11. Tillaga Á-lista; Deiliskipulag á Gaddstöðum. Ingvar Pétur Guðbjörnsson vekur athygli á hugsanlegu vanhæfi sínu til afgreiðslu málsins og víkur af fundi. Lagt er til að unnið verði að deiliskipulagi á Gaddstaðaflötum til þess að hægt sé að nýta alla möguleika svæðisins sem best. Greinargerð: Gera þarf ráð fyrir útivistarsvæði  fyrir íbúa, hesthúsabyggð og skapa …

Tillaga – Deiliskipulag á gaddstöðum Read More »

Þykkvibær verður þéttbýli á ný

Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur afturkallað ákvörðun fyrri sveitarstjórnar frá í vor um að skilgreina Þykkvabæ sem dreifbýli. Þykkvibær er því þéttbýli áfram og er ákvörðunin tekin í samráði við Skipulagsstofnun. „Við vildum verða við vilja íbúa þarna um að halda þessu áfram sem þéttbýli og viðhalda þannig sög­unni,“ sagði Guðfinna Þorvaldsdóttir, oddviti, í samtali við …

Þykkvibær verður þéttbýli á ný Read More »