Fréttatilkynning – Á-listinn í Rangárþingi ytra býður fram í fjórða sinn

Á-listinn í Rangárþingi ytra birtir hér með framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022 og býður þar með fram í fjórða sinn. Á listanum er fólk með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu úr atvinnulífinu og sveitarstjórnarmálum.

Allir frambjóðendur eru búsettir í sveitarfélaginu og er listinn óháður hefðbundnum stjórnmálaflokkum. Þannig teljum við hag sveitarfélagsins best borgið, með áherslum íbúanna sjálfra um þeirra eigin hag.

Framboðið teflir ekki fram fyrirfram ákveðnu sveitarstjóraefni, en fái framboðið til þess stuðning mun það auglýsa eftir hæfum einstaklingi til að framkvæma þau verkefni sem sveitarstjórn setur í farveg hverju sinni.

Frambjóðendur eru fullir tilhlökkunar að vinna að þeim verkefnum sem liggja fyrir, sem fulltrúar allra íbúa sveitarfélagsins. Allir áhugasamir um framboðið eru hvattir til að fylgjast með framvindu mála á samskiptamiðlinum Facebook – www.facebook.com/alistinnry

Listinn er þannig skipaður:

  1. Eggert Valur Guðmundsson, 59 ára, sjálfstætt starfandi.
  2. Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, 45 ára, bóndi og sveitarstjórnarfulltrúi.
  3. Erla Sigríður Sigurðardóttir, 29 ára, sjúkraflutningamaður.
  4. Þórunn Dís Þórunnardóttir, 29 ára, aðstoðarútungunarstjóri og rafvirkjanemi.
  5. Viðar Már Þorsteinsson, 47 ára, tæknifulltrúi og símsmiður.
  6. Brynhildur Sighvatsdóttir, 33 ára, tamningamaður.
  7. Berglind Kristinsdóttir, 48 ára, verslunareigandi og prjónakona.
  8. Magdalena Przewlocka, 43 ára, grunnskólakennari og stærðfræðingur.
  9. Jón Ragnar Björnsson, 79 ára, eldri borgari og formaður félags eldri borgara í Rangárvallasýslu.
  10. Fjóla Kristín B. Blandon, 29 ára, grunnskólakennari og master í íþróttasálfræði.
  11. Yngvi Harðarson, 62 ára, vélstjóri.
  12. Daníel Freyr Steinarsson, 24 ára, vélamaður og slökkviliðsmaður hjá Brunavörnum Rangárvallasýslu.
  13. Jóhanna Hlöðversdóttir, 33 ára, stöðvarstjóri í Matorku fiskeldi.
  14. Magnús Hrafn Jóhannsson, 58 ára, teymisstjóri.

Fréttatilkynning frá Á-listanum í Rangárþingi ytra.