Kæru íbúar og gestir, til hamingju með þjóðhátíðardaginn.
17. júní er dagur sem við Íslendingar höldum hátíðlegan með stolti og þakklæti. Við minnumst þess að sjálfstæði þjóðar verður ekki til úr engu. Að baki er barátta og trú á framtíðina og sú einlæga sannfæring að samfélag eigi að fá að mótast af fólkinu sjálfu sem þar býr. Sjálfstæðisbarátta Íslendinga tók langan tíma og krafðist mikillar þolinmæði.
Þessi barátta var ekki bara fyrir stjórnarskrá, þjóðfána eða formlegu fullveldi. Hún snerist ekki síður um mannlega reisn, menntun og framfarir og betra líf fyrir komandi kynslóðir.
En einmitt þess vegna er mikilvægt að við gleymum því ekki að góð samfélög fólks verða ekki til af sjálfum sér. Þau verða til með skynsamlegum ákvörðunum, samstöðu og ábyrgð.
Hér í Rangárþingi ytra stöndum við vel sem samfélag. Hér býr dugmikið fólk og við erum svo lánsöm að hér er atvinnulíf í blóma og fjölmörg tækifæri.
Við búum í sveitarfélagi þar sem nálægðin skiptir máli. Hér þekkist fólk og fylgist hvert með öðru og lætur hringrás samfélagsins sig varða. Hlutverk sveitarfélagsins er ekki aðeins að halda úti lögbundinni þjónustu, verkefnið er ekki síður að skapa umgjörð þar sem fólk getur lifað góðu lífi og tekið þátt í samfélaginu, fundið til öryggis og upplifað að það tilheyri heildinni, hvort sem fólk fætt á Íslandi eða hefur komið til landsins til þess að skapa sér betra líf.
Þá skipta góðir og öflugir grunninnviðir öllu máli.
Góðir skólar skipta máli, góð íþróttaaðstaða skiptir máli, góð félagsaðstaða skiptir máli, góð aðstaða fyrir eldri borgara skiptir máli.
Leikvellir, gönguleiðir, sundlaugar, íþróttahús og samkomustaðir eru ekki aðeins mannvirki. Þetta eru staðirnir þar sem samfélagið lifir. En það er ekki nóg að reisa stórar og flottar byggingar, innra starfið er það sem skiptir öllu máli.
Skólastarf snýst ekki fyrst og fremst um steypu, gler og timbur. Það á að snúast um börnin okkar, starfsfólkið, faglegt starf, líðan fólksins og metnað fyrir því að gera vel og þann starfsanda sem ríkir innan veggjanna. Það sama á við um íþrótta- og tómstundastarf.
Mannvirkin eru nauðsynleg en það er fólkið sem gefur þeim gildi. Börnin sem mæta á æfingar. Þjálfararnir sem leggja á sig ómælda vinnu. Foreldrarnir sem skutla, hvetja og standa við hliðarlínuna. Sjálfboðaliðarnir sem halda starfinu gangandi. Allt þetta er hluti af þeirri samfélagsgerð sem við viljum standa vörð um.
Við þurfum líka að horfa til þeirra sem eldri eru. Gott samfélag sýnir aldrei betur styrk sinn en í því hvernig það kemur við þau sem hafa byggt samfélagið upp. Eldri borgarar eiga að hafa tækifæri til þess að taka þátt og búa við öryggi og finna að reynsla þeirra og nærvera skipti máli. Þegar vel tekst til með skóla- og íþróttastarf og þjónustu við eldri borgara erum við ekki aðeins að bæta aðstöðu.
Við erum líka að draga úr hættu á félagslegri einangrun. Einmanaleiki er ekki bara bundinn við stærri samfélög, slíkt getur líka orðið til í minni samfélögum. Einmanaleiki er alvarlegur hlutur og vaxandi samfélagslegt vandamál sem getur snert barn sem finnur sig ekki í hópnum, ungmenni sem vantar vettvang, foreldri sem finnur fyrir álagi eða eldri einstakling sem hittir fáa í daglegu lífi.
Þörf okkar fyrir félagsleg tengsl er svo mikilvæg að hún er sambærileg við það að fá mat og svefn. Við skulum hafa í huga að náin samskipti skapa fólki lífsgæði langt umfram völd, frægð og frama.
Við viljum samfélag þar sem fólk sér hvert annað, þar sem fólk heilsast og lætur náungann sig varða. Þar sem börn fá athygli og ungmenni fá tækifæri til þess að nýta hæfileika sína. Barnafjölskyldur fái stuðning við hæfi og eldra fólk fái að njóta virðingar, þjónustu og samveru. Það er metnaðarfullt markmið að stefna að því að grunninnviðir í Rangárþingi ytra séu meðal þeirra bestu á landinu.
En það er gott að setja sér markmið, ekki vegna þess að við þurfum alltaf að vera stærst eða byggja sem mest, heldur miklu frekar að hafa metnað fyrir lífsgæðum íbúanna sem hér búa.
Á þjóðhátíðardegi fögnum við frelsi Íslands. En frelsi er ekki bara fáni, hátíðarræða, söngur og gleði. Frelsi er líka ábyrgðin á því að byggja gott samfélag fyrir alla.
Njótum dagsins.
Verum stolt af landinu okkar, sveitarfélaginu okkar og fólkinu sem hér býr.
Til hamingju með þjóðhátíðardaginn íbúar og gestir Rangárþings ytra.
Takk fyrir mig.
Eggert Valur Guðmundsson,
oddviti sveitarstjórnar Rangárþings ytra.



