Frá oddvita: Landsmót hestamanna á Hellu

Landsmót hestamanna er hápunkturinn í hestamennsku á Íslandi og um leið hátíðarsýning og keppni þar sem íslenski hesturinn er í aðalhlutverki. Þeir sem mæta á landsmót fá að sjá allt það besta sem er í gangi í hestamennskunni á Íslandi er varðar gæðinga og kynbótahross, og nútíma reiðmennsku. Að þessu sinni er landsmót hestamanna haldið á Gaddstaðarflötum á Hellu á Rangárvöllum. Mótssvæðið á Gaddstaðarflötum er allt hið glæsilegasta og bíður eftir knöpum, hrossum og áhorfendum. Landsmót hestamanna er einn stærsti íþrótta- og fjölskylduviðburður ársins.

Áhugafólk um hestamennsku og samveru fjölskyldunnar koma saman og fylgjast með bestu hrossunum  og knöpum landsins. Öll aðstaða á Hellu til mótahalds stærstu hátíðar hestamanna er frábær og svæðið skartar sínu fegursta sem aldrei fyrr. Einn af mörgum kostum keppnissvæðisins er hvað stutt er á milli valla og auðvelt að fylgjast með keppni á tveimur stöðum í einu. Á Hellu er öll þjónusta sem mótsgestir þurfa á að halda m.a. sundlaug, matvöruverslun,  veitingastaðir, hraðbanki  og gisting.

Sumarnóttin fer að að styttast og ég hvet alla til þess að taka þátt í frábærum viðburði og njóta í leiðinni þess sem sveitarfélagið okkar hefur uppá að bjóða t.d að skreppa í hellaskoðun við Ægissíðu eða taka þátt og fylgjast með flughátíð á Hellu sem fer fram þessa helgi, að auki eru aðrir fjölmargir áhugaverðir hlutir að skoða.

Það þarf bara að mæta á svæðið og taka þátt. Það eru allir velkomnir í Rangárþing ytra þar sem allir eru fyrir alla.

Eggert Valur Guðmundsson
Oddviti Rangárþings ytra