Eins og sumir hafa nú þegar tekið eftir er verið að setja upp hjólabrettasvæði á afmörkuðu svæði á bílastæði við sparkvöllinn sunnan við íþróttahúsið á Hellu. Takmarkið með þessari aðgerð er að koma búnaði sem hefur verið keyptur í hjólabrettagarðinn í virkni sem fyrst með hagkvæmum og skilvirkum hætti. Þessi staðsetning er hugsuð til bráðabirgða en vinnuhópur um framtíðarskipulag íþróttavallasvæða í Rangárþingi ytra komi með tillögu að framtíðarstaðsetningu hjólabrettagarðsins.
![](http://alisti.is/wp-content/uploads/2022/08/hjolabretta2-1024x768.jpg)
![](http://alisti.is/wp-content/uploads/2022/08/hjolabretta3-1024x768.jpg)