Í frétt á mbl.is um nýja skýrslu Katrínar Jakobsdóttur um tekjur af nýtingu þjóðlendna kemur m.a. fram að hartnær 89% aðspurðra sveitarfélaga svöruðu fyrirspurn Forsætisráðuneytisins eða 34 sveitarfélög. Einungis fjögur sveitarfélög svöruðu ekki fyrirspurninni og var Rangárþing ytra eitt þeirra. Óskað var eftir þessum upplýsingum í byrjun árs 2022.
Fréttin er hér fyrir neðan:
Tekjur sveitarfélaga, þar sem þjóðlendur er að finna, af nýtingu lands og landsréttinda innan þjóðlendna námu samtals rúmlega 20 milljónum króna á síðasta ári. Þá hafði Vatnajökulsþjóðgarður 25 þúsund krónur í tekjur af nýtingu lands og landsréttinda innan þjóðlendna. Þetta kemur fram í skýrslu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, sem lögð var fram á Alþingi í gær.
Tilvísun: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022/05/25/litlar_tekjur_af_nytingu_thjodlendna/
Þjóðlendur er að finna í 38 sveitarfélögum og óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá þeim um þær tekjur sem þau höfðu af nýtingu þeirra á árinu 2021. Jafnframt var óskað eftir upplýsingum um ráðstöfun þeirra tekna af nýtingu lands og landsréttinda innan þjóðlendna, sem sveitarfélög öfluðu á árinu. Af sveitarfélögunum svöruðu 34 þeirra fyrirspurninni, eða hartnær 89%. Alls höfðu 26 sveitarfélög engar tekjur af nýtingu lands innan þjóðlendna á árinu 2021, eða um 76%. Þá höfðu átta sveitarfélög tekjur innan þjóðlendna í einhverju formi, eða 23,5%.
Fjögur sveitarfélög svöruðu ekki fyrirspurn ráðuneytisins, þ.e. Sveitarfélagið Ölfus, Rangárþing ytra, Húnaþing vestra og Akrahreppur. Tekjur innan þjóðlendna eru mismiklar milli sveitarfélaga, allt frá rúmum 35 þúsund krónum í Sveitarfélaginu Skagafirði í rúmar 8,2 milljónir króna í Ásahreppi.
Tekjum af nýtingu lands og landsréttinda innan þjóðlendna virðist að mestu leyti varið til endurbóta, umsjónar eða eftirlits innan þjóðlendna. Færst hefur í vöxt að sveitarfélög geri samninga um nýtingu lands og landsréttinda innan þjóðlendna í samráði við og með samþykki ráðuneytisins. Er þar einkum um að ræða skála og aðstöðu vegna áforma um uppbyggingu í tengslum við aukna ferðaþjónustu.